Færsluflokkur: Bloggar
19.5.2010 | 15:54
Stolt af honum
´Ég tek ofan fyrir þessum dreng, að þora að kæra. Hvernig svo sem dómur fer þá er hann að gera réttan hlut. Það hefur verið mikið í umræðunni um stúlkur og konur verða fyrir kynbundnu ofbeldi, en drengir hafa gleymst. Afleiðingarnar fyrir fullorna menn sem hafa orðið fyrir svona ofbeldi, líkt og konum er þessi hrikalega skömm, og skömminni fylgja margar aukaverkanir.
Tvítugur piltur hefur kært kynferðislega misneytingu af hálfu rétt rúmlega þrítugs karlmanns til lögreglu. Árásarmaðurinn var handtekinn í morgun og er í skýrslutöku. Maðurinn hefur áður verið sakaður um sambærilegan verknað, án þess þó að til ákæru kæmi.Atvikið átti sér stað í heimahúsi í Hafnarfirði fyrir um þremur vikum. Samkvæmt heimildum fréttavefs Morgunblaðsins, mbl.is, sátu mennirnir að drykkju og neyslu vímuefna hjá þeim eldri vel fram á nótt. Þegar svefndrungi lagðist yfir þann yngri færði sá eldri sér það í nyt og kom fram vilja sínum.Samkvæmt sömu heimildum neitar eldri maðurinn sök og ber við að kynlífið hafi verið með vilja beggja.Umræða um kynferðisbrot mikilMaðurinn hefur áður verið sakaður um að leita á sér yngri menn. Í desember síðastliðnum voru þrír karlmenn dæmdir í skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir líkamsárás á hinn meinta kynferðisbrotamann framda fyrir utan skemmtistað í Hafnarfirði á árinu 2007. Mennirnir báru við fyrir dómi að reiði þeirra út í þann sem þeir réðust á, hafi byggst á því að sá hefði leitað á tvo þeirra þegar þeir voru 19 ára og áfengisdauðir.Jafnframt kemur fram í framburði eins þeirra að umræða um kynferðisbrot mannsins hefði verið mikil í Hafnarfirði.Maðurinn neitaði ásökunum mannanna um að hann hefði áreitt tvo þeirra kynferðislega og sagði framburð þeirra rangan.Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglu höfuðborgarsvæðisins, staðfesti að maðurinn væri í skýrslutöku. Hann taldi óvíst að farið yrði fram á gæsluvarðhald yfir honum, enda langt um liðið frá hinu meinta broti.Það að notfæra sér að einstaklingur geti ekki spornað við kynferðislegum verknaði sökum ölvunar og svefndrunga brýtur í bága við 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga og telst til nauðgunar. Sé einstaklingur sakfelldur fyrir brot gegn ákvæðinu skal hann sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.5.2010 | 20:41
Grjótskálshnjúkur
Það er merkilegt þegar maður leggur upp með e-ð verkefni, að veður hamlar að það sé hægt að klára það. Það var ætlunin að fara á Kaldbak í dag, hlakkaði þvílíkt til, aldrei farið að fjallinu einu sinni. Og þurftum frá að hverfa vegna veðurs, og akkúrat ekkert skyggni hrikalega fúlt.
En það er alltaf plan B til. Áður enn við komum að Grenivík sáum við afleggjara í Hvalvatnsfjörð. Okkur leyst vel á þá leið. Þá fundum við Grjótskálshnjúk.... Gátum reyndar ekki farið alveg upp, vegna veðurs, en fórum ansi langt upp. En það var hríðabylur og mikið rok....það var mikið þoka uppi.. en þegar ég leit niður þá var það stórkostlegt útsýni. Sást vel inn í Eyjafjörð og til Dalvikur, Hrísey og Áskósands. Komumst að þeirri niðurstöðu að þetta væri frábært berjaland og mikill pottur á sumrin(hiti)..
Það er frábært að hafa plan B, þegar maður er opin fyrir ævintýri,,,, það er það sem gerðist í dag
ÆVINTÝRI
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.4.2010 | 13:48
Gos og ??
það er magnað að sjá þetta sjónaspil.
En á meðan gýs á landinu þá gleymist annað... það er eins og fjölmiðlar geti bara talað um eitt í einu..það skyldi þó ekki vera að það séu bara karlar við völd í fjölmiðlum landsins???
Ég hef aldrei séð svona áður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.1.2010 | 17:13
Til hvess
Búið að skjóta ísbjörninn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.1.2010 | 16:54
Glöð:)
Stúlka fannst á lífi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2010 | 16:50
ÁFRAM ÍSLAND...
Ísland í undanúrslit á EM | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2010 | 00:17
Gott
Enn finnst maður á lífi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.1.2010 | 20:56
Ljótt
Fangaklefarnir fylltust í nótt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2010 | 20:50
hummm!!!
Kvensamur Íslendingur rændur í Taílandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.1.2010 | 20:46
jæja kom að því...
Ísland átti aldrei von gegn Frökkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)