Gott

Ég er glöð yfir því að hann fannst, áður en hreinsunarliðið kom...en það er voða skrítið að íslensk foreldrar geta ekki fengið börnin sem eru á munaðarleysishælum þarna.. samt var tala um að beita ekki þrýstingi... af hverju ekki..? af hverju þarf allt að vera svona hrikalega flókið? Frakkland eru búnir að opna fyrir ættleiðingu,,, af hverju ekki við? 
mbl.is Enn finnst maður á lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlaup og sumar

jæja þá er ég búin að dusta rikið af hlaupaskónum. Fór  smá hring hér á Akureyri, prufaði brekkur meiri segja Dalsbrautabrekkuna. (var nú ekki eins slæm og ég hélt).  Hljóp síðast í ágúst þurfti að hætta vegna meiðsla, og er að koma mér af stað núna. Og kannski eitt til tvo maraþon í sumar... hver veit.Wink

Svo fórum við í sund á eftir í Þelamörk, það er orðin flott sundlaug eftir breytingar,en dálitið heit. Skora á ykkur að prufa hana. Annars erum við búin að fara í flestar sundlaugar landsins. Það er svo gaman að rúnta um og búa til sýn eigin ævintýri, fara af stað út í óvissuna og gera bara eitthvað. Börnunum mínum finnst það svo gaman, elsta dóttir mín var einmitt að panta útilegu í sumar, og gaf það út að sumarið síðasta hefði verið frekar leiðinlegt  því að það vantaði tjaldútilegur. Það var farin ein ferð og hún endaði frekar illa. Þannig að það verður farið í fleiri á komandi sumri, og þær verða betri, því að ég ætla að kaupa tjaldhitara fyrir þetta sumar. Svo að við verðum ekki sótt úr útilegu vegna kulda eins og síðasta sumar. 

Verð að segja ykkur frá alveg frábæri hljómsveit sem heitir MYRKÁ. Var á tónleikum með henni í gærkvöldi, alveg einstaklega vönduð hljómsveit. Veit ekki hvort það séu allir sem eru að meika tónlistina þeirra, en hún kom mér verulega á óvært. Ef það eru einhverjir rokkarar þarna úti sem viljið góða tónlist þá er þetta e-ð sem þið verið að skoða. Mæli með henni.......Smile 


upphefð og niðurtal

Þá er svona meiri pæling burt frá pólitík og Haítí...Ég er að rekast á smámunasemi hér á blogginu. Sem er bara fyndið, og kennir mér helling

WounderingEn þegar kemur að því upphefja sig á annars kostað ..það er ömurlegt (var reyndar lengi að finna e-ð orð yfir svona fólk og fann það eiginlega ekki) Þá er ég að meina svoleiðis fólk sem skrifa hér inni í þeim eina tilgangi að særa annað fólk, svoleiðis fólk er fyrt af öllu sem heitir skynsemi og veruleiki. Ég sjálf hef orðið fyrir svoleiðis konu hér á blogginu, og þykir nóg um. Ég er pirruð yfir framkomu þessarar konu sem lýsir barnaskap og verulega litlum þroska . Þetta er eina leiðin til að skrifa, því að ég er viss um að hún les allt sem ég er að skrifa. Ég vorkenni þessari konu. Því ekki vil ég vera ung og "hamingjusöm" móðir í uppreisn við konu út í bæ.. Ég nenni ekki svoleiðis. Þessi kona býr reyndar ekki í mínu bæjarfélagi. En einu sinni gerðum við það. En það spaugilega við þetta allt er að ég þekki þessa konu ekkert, og hún ekki mig.Við höfum sést og tala saman og allt það, en við eru svo sannarlega engar vinkonur. En ég vil henni bara það besta og að henni liði vel. Og hættir að tala niður til mín og upphefja sig.FootinMouth


Ljótt

þetta er ljót þróun..kannski er að koma í ljós það sem Þórarinn Tyrfingsson sagði í blaðagrein hér á mbl um daginn.. að ástandið eigi bara eftir að versna...ljót þróun.....á þetta virkilega eftir að versna?
mbl.is Fangaklefarnir fylltust í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hummm!!!

það hefur verið mörgum manninum dýrt að ferðat til tailands...hann er annsi óheppinn blessaður maðurinn....hehe
mbl.is Kvensamur Íslendingur rændur í Taílandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

jæja kom að því...

þessi tap leikur heldur okkur á jörðinni...liðið er búið að fá allt of mikla athygli síðustu daga,  förum varlega....
mbl.is Ísland átti aldrei von gegn Frökkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

já breyttir tímar

Ég var nú ekki mikið inn í þjóðmálum 2003 líka e-ð allt annað að gera.. en eftir þessu man ég... alveg ótrúlegt hvað það er hægt að breyta öllu sér í hag þó sérstaklega hann Steingrímur  breyttir tímar....
mbl.is Ekki of flókið árið 2003
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

gjafmildi

Björgunarsveitin okkar er öll í sjáfboðarvinnu, þeir vinna óeigingjarnt starf við að hjálpa öðrum...hvort það sé hér heima eða erlendis. Hvort til sé peningur eða ekki.

keyptum við ekki öll flugelda hjá björgunarsveitinni...? 


mbl.is Fátæka Ísland fyrst til Haítí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heiðaleiki

Mikið er gott að vita að það eru ekki allir gráðugir í peninga...en þeir stjórna allt of miklu.....

Væri það ekki gott að aðrir tækju þennan ágæta mann sé til fyrirmyndar.... eins og t.d bankamenn og aðrir sem nota aðra út af eignum og peningum...... 


mbl.is Heiðarlegur leigubílstjóri skilaði milljónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja þá...

Jæja þar kom það....var það ekki Jóhanna sem þá um þetta? þær ungu teknar við? óska þeim til hamingju með þetta.....annars er þetta varla fréttnæmt...Shocking
mbl.is Ragnhildur Steinunn og Eva María óléttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband